Í síðasta mánuði var farin stofuferð til Aberdeen í Skotlandi. Tilefnið var að nú hafa allir þrír skólarnir, hannaðir undir merkjum Designa Architects, hafa nú verið teknir í notkun.
Sérlega vel var tekið á móti hopnum bæði í Manor Park Primary School og Cults Academy, og ljóst að mikil ánægja er með nýju skólabyggingarnar.
Skólarnir þrír sem hannaðir voru af Íslendingum eru Cults framhaldsskólinn, og grunnskólarnir Heathryburn og Manor Park. Verkið var unnið undir merkjum Designa Architects, sem er samstarfsvettvangur VA Arkitekta og Á Stofunni. Aðrir samstarfsaðilar voru Studio Strik á Íslandi, Aedas og NDVR í Glasgow, og Acanthus í Aberdeen.
Verkið var einkaframkvæmd fjármögnuð af Landsbanka Íslands, en annars á vegum Nýsis, Pihl & Son í Danmörku og Operon frá Bretlandi.
Einkaframkvæmdin öll fólst í byggingu tíu skólabygginga í Aberdeen, en hönnun þeirra var skipt á milli þriggja arkitektastofa.




