Tegund: Heilsulind
Lokið: 1998/2007
Stærð: 6000 m2
Staðsetning: Svartsengi, Grindavík
Hönnunnarteymi: Hönnunarteymi fyrsta áfanga: Anna Sigríður Jóhannsdóttir, Edda Þórsdóttir, Richard Ólafur Briem, Sigríður Sigþórsdóttir (aðalhönnuður), Sigurður Björgúlfsson, Steinunn Halldórsdóttir.
Hönnunarteymi seinni áfanga: Ingunn Lilliendahl, María Sjöfn Dupuis, Sigríður Sigþórsdóttir (aðalhönnuður), Steinunn Halldórsdóttir.

Viðurkenningar: Menningarverðlaun DV 1999.  Tilnefnt til Mies van der Rohe verðlauna, verðlaun Ferðamálaráðs, og Umhverfisverðlaun Reykjanes 2000. Tilnefnt til Norrænna Lýsingarverðlauna 2002.

Lýsing: Við hönnun Bláa Lónsins var lögð megin áhersla á samspil nútímatækni og einstæðrar náttúru. Byggingin er lögð í hraunjaðar Illahrauns. Frá bifreiðastæði gesta að aðalinngangi hússins er gengið u.þ.b. tvöhundruð metra í hraungjá. Við tekur manngerður hraunveggur sem er leiðandi í gegnum forsal og veitingaraðstöðu, út á verönd við sjálft baðlónið og tengir húsið ósnortinni hraunbrún sem umlykur baðlónið. Úr forsal er gengið í búnings- og baðaðstöðu, veitinga- og ráðstefnusal og ferðamannaverslun. Í gegnum glervegg  forsalar- og veitingaaðstöðu blasir við útsýni yfir baðsvæðið.