Tegund: Framhaldsskóli.
Lokið: 2005.
Stærð: 2280 m2.
Staðsetning: Grundarfirði, Snæfellsbæ.
Verkkaupi: Menntamálaráðuneytið.
Lýsing: Fjölbrautaskóli Snæfellinga er hannaður með hugmyndafræði opina kennslurýma að leiðarljósi. Skólabyggingin samanstendur af þyrpingu húskroppa sem tengjast með umferðarými. Áhersla er lögð á fjölbreytileika kennslurýma, þannig að nemendur og kennarar geta valið milli ólíkra rýma hvað stærð, birtu og hljóðvist snertir.






